Hvað þýðir "carat" og hver er munurinn?

Hreint gull er skilgreint sem "24 carat" og er frekar mjúkur málmur í eðli sínu. Því er gulli oftast blandað saman við aðra mála til að gera það sterkara og ódýrara. 18 carat þýðir að 18 hlutar af 24 eru gull, eða 75% hreint gull.

Hvað er hvítagull?

Hvítagull er búið til með því að blanda saman gulu gulli við hvíta málma. Það er oft húðað með Rhodium til að gefa því glansandi og glitrandi áferð.

Hvað er Platínum?

Platínum er hvítur málmur sem er mjög sjaldgæfur og jafnvel verðmætari en gull. Platínum er jafnframt harðari málmur en gull og því erfiðari að vinna með. Ólíkt hvítagulli þarf aldrei að húða Platínum, heldur nægir að pússa málminn og hann verður aftur glansandi og glitrandi.