Demantar eru sagðir fágætustu og verðmætustu eðalsteinar heims. Þeir eru tákn um ást, ríkidæmi, fegurð. Nauðsynlegt er að hafa einhverja þekkingu á demöntum þegar þeir eru keyptir, hvort sem er í skartgrip eða stakir sem fjárfesting.Í þessum fróðleiksmola er fjallað stutt um mun á hreinleika, litumun og skurð demanta.

Þegar demantar eru keyptir er gott að hafa grunnþekkingu á þeim.Demantur er náttúrulegt efni. Náttúran sjálf sér um sköpun demantsins, hreinleika hans og stærð. Það eina sem maðurinn hefur áhrif á er slípun/skurður demantsins. Ef demantur er ekki rétt slípaður er búið að koma í veg fyrir að hann njóti sín eins og vera ber. Demantar eru mishreinir og veldur það miklum verðmun á þeim.

Demantar eru flokkaðir frá D (bláhvítur) yfir í Z (gulur). Því nær sem demantur er D flokknum þeim mun dýrari er hann. Demantar eru verðlagðir eftir alþjóðlegum stöðlum, gjarnan kölluð hin fjögur “C”; Carat (þyngd), Color (litur), Clarity (hreinleiki) og Cut (slípun). Tærir og hreinir demantar eru verðmætastir en eftir því sem litur verður sýnilegri birtist gulur blær á demöntunum og þegar hreinleikinn minnkar sjást svartar eða hvítar örður í honum og/eða jafnvel sprungur. Engir tveir demantar eru eins.

Karöt (Carat)
Líkt og aðrir dýrmætir steinar þá er þyngdin mælieining demants, þ.e. þyngd demantsins er mæld í karötum. Eitt karat er deilt í hundrað punkta þannig að demantur sem hefur 40 punkta er skilgreindur sem 0.40 karöt. Í daglegu tali er þó frekar talað um: "Hringurinn minn er með fjörtíu punkta demanti".

Hreinleiki (Clarity)
Svo til allir demantar hafa litlar agnir af ókristölluðum frumefnum. Flestar eru þessar örður illgreinanlegar fyrir mannsaugað nema með stækkunargleri. Þetta er eðlilegt og í rauninni einskonar fingraför náttúrunnar sem gerir hvern demant einstakan. Því færri sem agnirnar eru, því hreinni og verðmætari er steinninn. Fyrsta flokks demantur á að vera alveg tær. Sjaldan finnast þó demantar án nokkurra ummerkja. Þarf margfalda stækkun á slíkan demant til að sjá örðurnar.

IF (Internally flawless)
Inntær
FL (Flawless) Tær
VVS (very, very small inclusions) Mjög, mjög smáar örður
VS (very small inclusions) Mjög smáar örður
SI (small inclusions) Smáar örður
P (Pigue) Áberandi örðu

Litur (Colour)
Demantar finnast í öllum mögulegum litum, en þó eru lang flestir með gulleitum eða brúnum blæ. Litlaus demantur er sjaldgæfastur og því verðmestur. Litirnir eru oftast nefndir:
River (blá-hvítur)
Top Wesselton
Wesselton

Top Crystal
Crystal
Top cape (léttur litablær)
Cape
Light yellow
Yellow (Gulur, gulbrúnn)

Slípun (Cut)
Í öllum demöntum er falin fegurð sem fullkomnuð er af fagmanni með réttri slípun. Fegurð og litaspil demantsins kemur þá fyrst í ljós. Demantar eru slípaðir í mörg ólík form. Algengust er "brilliant" slípun sem skiptist upp í 58 fleti. Demantar eru einnig demantar slípaðir í önnur form s.s. Baguette, marquise og Oval.